8 hjúkrunarfræðinemar

fr.vi: Elva, Þórey, Lilja, Hlín, Helga, Kolbrún, Halldóra, Kristín

Við erum 8 hjúkrunarfræðinemar á leið til Kenya, í Afríku í sjálfboðaliðastarf og verðum við í Kenya frá 17.mai - 16.júní 2007. Við munum starfa á fimm mismunandi heilsugæslustöðvum í fátækrahverfum í Nairobi í þrjár vikur. Allt í allt verða þetta 4 vikur þar sem við munum nota síðustu vikuna til þess að ferðast.

Við munum fara á vegum Kenya-project sem hefur verið starfandi í nokkur ár. Kenya-project átti upptök sín meðal norskra læknanema en er nú orðið samnorrænt læknanemasamstarf á vegum Alþjóðasamtaka læknanema (IFMSA). Þarna verðum við að vinna á heilsugæslustöðvum sem reknar eru af hjálparsamtökum heimamanna, Provide International. Við erum þeir fyrstu sem fara á vegum þeirra sem hjúkrunarfræðinemar frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Vonumst við með okkar þátttöku að við munum hvetja aðra úr hjúkrunarfræðideildinni til þess að feta í okkar spor. Munum við síðan fylgja ferðinni eftir með fyrirlestrum og kynningu á starfinu.

Heimasíða Kenya-project er http://www.kenya-project.org.

Við stundum nám í Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Við erum allar að klára annað árið nú í vor. Þegar við tókum þá ákvörðun að fara saman þá vorum við allar sammála um að þetta væri gamall draumur. Við höfum allar mikinn áhuga á öllu sem tengist náminu og gefst okkur þarna tækifæri til að láta gott af okkur leiða á sama tíma og við öðlumst ómetanlega reynslu á sviði fræðigreinarinnar. Þarna munum við sjá og upplifa nýjan menningarheim, nýjar aðstæður, óvenjuleg sjúkdómstilfelli sem við munum líklega aldrei verða vitni að hér heima. Jafnframt tekst okkur að leggja okkar af mörkum við að hjálpa íbúum í þróunarlöndunum sem búa við slæmar aðstæður bæði með því að vinna á staðnum, flytja út vörur og styrkja kaup á hinum ýmsa búnaði sem þörf er á til að reka heilsugæslustöð.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband